Hide

Problem I
Infinite Cash

Languages en is
/problems/infinitecash/file/statement/is/img-0001.jpg
Mynd tekin af flickr.com.

Svalur Handsome hefur loksins útskrifast með gráðu í tölvunarfræði og það mætti ekki seinna vænna. Hann á við smá óskynsamlega kaupgleði að stríða sem hann vonast til þess að geta stutt betur í hálaunuðu forritarastarfi. Hann sótti um hjá nokkrum fyrirtækjum og er núna með samning í höndunum sem hann getur skrifað undir og byrjað að vinna nánast tafarlaust. Áður en hann samþykkir boðið vill hann ákvarða hversu lengi það gæti stutt kaupgleði sína.

Í upphafi hvers dags eyðir Svalur helming penings í eigu sinni, námundað upp. Nýja starfið myndi greiða út $s$ ISK í lok $d$-ta hvers dags, þá fyrst á degi $d$. Hann á upphaflega $m$ ISK til þess að eyða.

Inntak

Inntakið er þrjár línur. Fyrsta línan inniheldur heiltöluna $s$. Önnur línan inniheldur heiltöluna $d$. Þriðja línan inniheldur heiltöluna $m$. Tölurnar uppfylla $1 \leq s, d, m \leq 2^{1000}$. Þar sem greiðslurnar eru fyrir starf tengt tölvunarfræði eru tölurnar gefnar í tvíundarkerfinu, náttúrulega.

Úttak

Skrifaðu út númer dagsins sem Svalur vill eyða pening en á engan. Þetta gildi á náttúrulega að skrifa í tvíundarkerfinu líka. Ef hann getur stutt við kaupgleði sína óendanlega skaltu skrifa út Infinite money!.

Sample Input 1 Sample Output 1
101110101
1010
10001110101010101
10011
Sample Input 2 Sample Output 2
101110101
1000
100011101
Infinite money!
Sample Input 3 Sample Output 3
101110101
1010
100011101
1001